Okkar lausnir


Business Central

 

LS Central frá LS Retail - Fyrir verslanir

LS Central verslunarlausnin frá LS Retail er samþætt verslunarkerfi í Business Central viðskiptakerfinu frá Microsoft.

LS Central kerfið inniheldur:

  • Afgreiðslukassi

  • Birgðakerfi

  • Tenging við netverslun

  • Bókhald / Innkaup / Sala

  • Aðrar einingar sem fylgja Business Central viðskiptakerfinu

Frekari upplýsingar um LS Central hér.


 

LS Central frá LS Retail - Fyrir veitingastaði

LS Central fyrir veitingastaði styður alllt það sem LS Central fyrir smásölu styður, en til viðbótar kemur sérhæfð virkni fyrir veitingastaði.

  • Borðabókanir

  • Skipta reikning

  • Skjákerfi í eldhúsið

Frekari upplýsingar um LS Central hér.


 

LS Central frá LS Retail er með öflugt lyfsölukerfi


 

WooCommerce tenging við LS Central

WooCommerce er ein útbreiddasta vefverslun heims. Við höfum útfært tengingu við LS Central þar sem grunnupplýsingum um vörur er stýrt í LS Central kerfinu. Allur verðútreikningur er byggður á gögnum í LS Central og vefverslunin er með uppfærða birgðastöðu reglulega. Þetta dregur verulega úr viðhaldi gagna, leiðréttingum á pöntunum og öðru óþarfa umstangi.

Með WooCommerce tengingunni kemur einnig tenging við Íslandspóst sem einfaldar til muna alla afhendingu.


 

WooCommerce tenging við staðlað Business Central kerfi

WooCommerce er ein útbreiddasta vefverslunarlausn heims. Við höfum smíðað tengingu við Business Central þar sem vörum og vöruupplýsingum er viðhaldið í Business Central. Pantanir færast síðan yfir í Business Central til afgreiðslu. Kerfið styður bæði B2B og B2C.


 

Fullkomin handtölvulausn fyrir vöruhúsakerfi Business Central

Tasklet Factory handtölvulausnin byggir ofan á stöðluðu vöruhúsakerfi Business Central. Kerfið styður alla helstu ferla vöruhúsa en einnig er auðvelt að útfæra hjáskipun (cross-docking), “tote” týnslu og fleiri ferla sem hjálpa til að auka afköst í meðalstórum vöruhúsum.


 

Samþætting Clock PMS við MS Business Central / LS Central

Clock PMS+ er afgreiðslukerfi hannað fyrir hótel og veitingastaði. Kerfið einfaldar fyrirtækjum að halda utan um pantanir á hótelherbergjum en einnig borðum og mat á veitingastöðum. Clock býður einnig uppá POS kerfi til að ganga frá greiðslum fyrir t.d. mat og drykki.

NVL hefur þróað tengingu þar á milli sem gerir Business Central / LS Central notendum kleift að færa afgreidda reikninga yfir í bókhaldskerfið.