Verslunarlausnir fyrir Business Central

NVL ehf er fyrirtæki sem sérhæfir sig í lausnum fyrir verslunarfyrirtæki og veitingahús. Við erum samstarfsaðili LS Retail sem er stærsti þróunaraðili verslunarlausna fyrir Business Central í heiminum.

Lausnir LS Retail eru notaðar af öllum helstu verslunarfyrirtækjum á Íslandi og hefur verið í notkun lengi.

Nútíma verslunarlausnir hafa þróað aðferðafræði og lausnir sem gera innleiðingu á LS Retail lausnum einfalda og fljótlega og hentar því lausnin bæði stórum sem smáum fyrirtækjum.

Reynsla. Ráðgjöf. Þekking

Í starfsfólki NVL býr djúp þekking og mikil reynsla af Business Central viðskiptakerfinu og LS Retail verslunarlausnum.